september 28, 2008

Áfram FH!!

Auðvitað heldur maður með besta liði landsins og er búin að vera í sæluvímu síðan í gær:) Pabbi var á leiðinni á leikinn og hélt því fram að það væru ca 20% líkur á að FH myndi verða Íslandsmeistari, en það væri allt í lagi því fyrir ca 20 árum hefði FH nánast verið með titilinn í höfn en KA átti bara ca 20% líkur á vinna titilinn og þá varð KA íslandsmeistari.
Í gæri ætluðum ég í sund með börnunum og ömmu og afa frá Akureyri í nýju sundlauginni hérna í Hafnarfirði. Tengdó voru komin á undan okkur í sundlaugina og eftir smá bið út í bíl ákváðu þau að rölta inn. Sem betur fer biðu þau ekki lengur út í bíl því sundlaugin var lokuð vegna lokunar á heita vatninu. Þau eru annars komin í bæinn til að hjálpa Jobba með börnin á meðan ég fer til USA en þangað fer ég í dag og kem ekki aftur fyrr en á laugardagsmorgun. Þann daginn ætla ég svo að taka þátt í Norðurlandasundmóti Garpa!!! Ég er svona ennþá að spá hvort ég sé e-ð klikkuð;)

Skrifaði eyrunl klukkan 09:40 FH

september 12, 2008

Sundgarpar

Ég hef elskað að fara í sund svo lengi sem ég man eftir mér og æfði sund í nokkur ár eins og þeir sem lesa þessa síðu vita nú eflaust. Eftir að ég hætti ætlaði ég alltaf að fara í Garpana sem eru oldies sundmenn, mætti einu sinni á eina æfingu en svo ekki meir. Nú er ég hins vegar búin að mæta á eina æfingu og ætla að mæta á þá næstu líka:) Ætla meira að segja að borga árgjaldið:) Ég man nú samt ekki eftir því að hafa nokkurn tímann áður orðið jafn þreytt eftir sund... Ég hélt að ég myndi bara ekki komast upp úr lauginni;) Æfingin í gær var í nýju sundlauginni út á völlum og þar sem mér fannst hún bara nokkuð heppileg fyrir börn ákvað ég að fara með krakkana í sund í dag eftir leikskóla EIN!! Þetta var frumraun mín í að fara með þau ein í sund og alveg merkilegt hvað það gekk vel. Við fórum meira að segja tvær ferðir í stóru rennibrautinni og það var mamman sem setti þak á fjölda rennibrautaferðir þar sem hún hafði takmarkaða þolinmæði til að bíða í langri röð til að komast í rennibrautina.

Skrifaði eyrunl klukkan 11:26 EH | 3 Ummæli