nóvember 26, 2008
Karl eða kona...
Fyrir rúmum 5 árum síðan (shit hvað tíminn líður) skrifaði ég heljarinnar pistil um jafnrétti kynjanna og hvort það væri nú þess virði að eignast börn ef jafnréttið á heimilinu myndi minnka í kjölfarið. Auðvitað myndi aldrei vilja sleppa því að eignast börn, elska þessa grísi mína út af lífinu og oftast nær er mömmuhlutverkið bara skemmtilega krefjandi. Hins vegar... ca 1x í mánuði hugsa ég alltaf... *píp, píp* (öll blótyrði heimilisins), af hverju er ég ekki kall!;) Svo lítur maður á sofandi krakkana í rúminu (ekkert sem bræðir mann meira en sofandi börn, þá eru þau svo friðsæl og geta ekkert gert af sér;)) og hugsar með sér hvað það sé nú gaman að vera mamma:)
Skrifaði eyrunl þann 26.11.08 00:06Ummæli
http://i302.photobucket.com/albums/nn94/mariussescu/bere.jpg?t=1227722018
Skrifaði: Logi Helgu þann 28.11.08 08:59