nóvember 26, 2008
Slökkviliðsaðgerðir
Í nokkurn tíma erum við búin að eiga hálf klikkaðan örbylgjuofn og alltaf haft hann í gjörgæslu á meðan hann er í notkun. Núna erum við mæðgurnar heima því Ásdísi fannst e-ð sniðugt að fá hita og svo ákvað hún að það væri líka sniðugt að setja örbylgjuofninn af stað á grilli. Ég slökkti að sjálfsögðu bara á ofninum og hélt áfram að spjalla í símann. Svo skil ég ekkert í lyktinni sem ég finn, athuga hvort hún hafi líka tekið upp á því að kveikja á eldavélinni en svo var nú ekki. Þegar brunalyktin eykst bara tek ég eftir því að það er farið að rjúka upp úr ofninum! Ég skelli því á tengdamömmu með þeim orðum að það sé kviknað í ofninum! Hentist út á stétt með ofninn og inn kemur hann ekki aftur! Við erum því bara orðið gamaldags kreppufólk sem á ekki einu sinni örbylgjuofn;)
Skrifaði eyrunl þann 26.11.08 11:15Það eru alveg að koma jól og örbylgjuofnar eru ótrúlega ódýrir í dag svo það gæti leynst einn í pakkanum ;)
Heppin samt að vera heima þegar þetta gerðist.