desember 14, 2008

Reisugilli

Í gær buðum við í afar óformlegt reisugilli og buðum upp á heitt súkkulaði og piparkökur. Það var ansi kalt á efri hæðinni þannig að heita súkkulaðið kom að góðum notum við að hlýja fólki;) Við vorum ótrúlega ánægð með að hafa drifið í þessu en þetta var frekar mikil skyndiákvörðun, var ákveðið í vikunni eftir að við fréttum að tengdó væru á leið í bæinn um helgina. Held að þetta hafi heppnast ágætlega hjá okkur, komu ansi margir þó maður geti auðvitað ekki ætlast til fullkominnar mætingar þegar maður býður með email rétt fyrir fjögur á föstudegi;)

Skrifaði eyrunl klukkan 08:40 EH | 5 Ummæli