desember 14, 2008

Reisugilli

Í gær buðum við í afar óformlegt reisugilli og buðum upp á heitt súkkulaði og piparkökur. Það var ansi kalt á efri hæðinni þannig að heita súkkulaðið kom að góðum notum við að hlýja fólki;) Við vorum ótrúlega ánægð með að hafa drifið í þessu en þetta var frekar mikil skyndiákvörðun, var ákveðið í vikunni eftir að við fréttum að tengdó væru á leið í bæinn um helgina. Held að þetta hafi heppnast ágætlega hjá okkur, komu ansi margir þó maður geti auðvitað ekki ætlast til fullkominnar mætingar þegar maður býður með email rétt fyrir fjögur á föstudegi;)

Skrifaði eyrunl þann 14.12.08 20:40
Ummæli

Takk fyrir okkur og innilega til hamingju með áfangann, þetta lítur vel út og verður flott tilbúið. Gæti verið að ég og fleiri fari mæti óboðin í áramótapartý næstu ára til að nýta útsýnið ;)

Skrifaði: Logi Helgu þann 14.12.08 22:48

já þetta útsýni má ekki fara til spillis!

Skrifaði: bína þann 15.12.08 13:43

Þið eruð alltaf velkomin:) Gæti hins vegar orðið frekar kalt um þessi áramót... eftir ár ætti hins vegar að vera hægt að halda partý;)

Skrifaði: Eyrún þann 15.12.08 14:28

Já... maður djammar ekki mikið þessi áramótin ;o)

Skrifaði: Bína þann 15.12.08 18:12

er ekkert að fara að koma meira að myndum og bloggi eða hvað? :S
agnes

Skrifaði: agnes þann 27.01.09 13:19