mars 24, 2009
Hor og skítur fyrir allan peninginn...
Fyrir rúmri viku hafði ég bara ekki fengið kvef ótrúlega lengi og ekkert orðið lasin bara heillengi. Sem var eiginlega bara merkilegt miðað við hvað ég var oft lasin í fyrra vetur. Á laugardaginn síðasta var ég búin að vera að drukkna úr kvefi í heila viku og var loksins að skána og ég hlakkaði bara til að verða betri og geta þá loksins kíkt á Berglindi og litlu snúlluna hennar... en neinei... á sunnudeginum fékk ég bara aftur kvef og er að drukkna eiginlega bara enn meira úr kvefi núna!!! Horið flæðir gjörsamlega um allir gáttir höfuðsins!! Komin með illt í tennurnar og þrýsting í kinnarnar... JAMMÍ!! Til að toppa þetta mætti svo herra hausverkur líka á svæðið og ákvað að gera mér lífið heldur leitt...
Kvart dagsins búið;)
Í síðustu viku fór Eyrún í smá vinnuferð til Osló. Þar sem ég er greinilega svo mikið 2007 þá fór ég bara út með kort en engan gjaldeyri... Visa kortinu mínu var hins vegar hafnað nánast alltaf og ég varð því bara að fara í hraðbanka og skipuleggja öll kaup fyrirfram svo ég ætti nú pening fyrir því sem ég var að fara að versla;) Reyndar var ekkert mikið verslað enda Osló dýr borg og ekki bætti gengi norsku krónunnar úr skák...
Skrifaði eyrunl þann 24.03.09 17:38Ég er búinn að finna fyrir einhverjum verk í tönnunum og komst að því að þetta var sýking í kinnholunum. Mæli með sýklalyfjum til að drepa þetta ;)
Skrifaði: Logi Helgu þann 24.03.09 23:21Já, ég er orðinn nokkuð sérfróð um "tannpínu" í kvefi og kinnholusýkingu. Hentist einu sinni til tannlæknis og tilkynnti honum að ég væri með holu! Var svo ekkert að;) Eftir nokkra sýklalyfjakúra út af kinnholusýkingu hætti ég að nenna til læknis, heldur læt þetta bara ganga yfir... tekur yfirleitt ekki lengri tíma en viku;)
Skrifaði: Eyrún þann 25.03.09 09:31