mars 14, 2009
Risin upp frá endurteknum bloggdauða
Ekki í fyrsta skipti sem ég þarf að reyna að koma mér aftur í gang eftir langt hlé... eins og áður þá er alltaf erfiðara að byrja aftur eftir því sem lengra líður frá svo þetta verður að ákveðnum vítahring. Í janúar hafði ég auðvitað ENGAN tíma til að vera e-ð á netinu, var þá öllum stundum hérna uppí húsi þ.e. þegar ég var ekki í vinnunni. Það endaði náttlega á massívri þreytu þ.a. ég fór að dotta á rauðum ljósum og var orðin hrædd við að keyra á miðjum degi því ekki vildi ég sofna undir stýri. Gekk um eins og vofa í vinnunni og reyndi að gera gagn... Janúar leið og ótrúlegt en satt þá fluttum við inn á fyrirfram ákveðna deginum okkar, þ.e. síðasta degi janúar mánuði sem akkúrat var á laugardegi. Með ótrúlegri hjálp náðum við að flytja allt dótið okkar og ganga frá og þrífa hina íbúðina áður en við fórum að sofa á laugardagskvöldinu. Nú hafa vikurnar svo liðið í nýja húsinu okkar og við höfum það bara ótrúlega kósí í þessum 47fm sem litla íbúðin er. Það eina sem mér finnst vanta hérna er hurð fyrir baðið... ég á ennþá eftir að gera upp hurð sem er inní bílskúr og setja fyrir baðið.
Skrifaði eyrunl þann 14.03.09 08:41það var mikið þú veist ekki hve heitt ég hef verið að bíða eftir þessu bloggi
Skrifaði: agnes þann 14.03.09 12:45