maí 29, 2009

Loksins, loksins komst síðan aftur upp

Jæja... e-ð gekk nú hægt að fá þessa síðu aftur upp. Jobbi þarf nefnilega að labba úr einu húsi í annað og það vita það nú væntanlega allir hvað það er erfitt;) Annars var ég nú heldur ekkert að ýta á eftir þessu. Aðallega þegar mér datt í hug að fara að ath með að setja myndir á netið sem mér fannst það vanta... en úr því að það var ekki hægt að setja neitt á netið, þá sleppti ég því bara... aldrei að vita nema ég fari að drífa í myndunum... Kannski ekki seinna vænna ef ég ætla e-n tímann að vinna upp þetta heila ár sem ég skulda;) Verður vonandi líka e-ð af nýjum myndum eftir næstu helgi... og svo á ég líka nokkrar "geimverumyndir" sem ég þyrfti að fara að skanna inn;)

Skrifaði eyrunl þann 29.05.09 22:12