júní 17, 2009
Bilaður heimasími
Í fyrradag var ég að spjalla við tengdamömmu þegar heimasíminn "dó" skyndilega, eða hún heyrði áfram í mér en ég heyrði ekkert. Ég skellti á og prófaði að hringja aftur, en þá heyrði ég heldur ekki símann hringja en sá á skjánum að það var búið að svara en áfram heyrði ég ekkert. Prófa að setja símann í hleðslu og stuttu seinna hringir síminn. Ég alsæl að síminn sé aftur hrokkinn í gang og svara. Það var e-r að spyrja hvort við vildum tala við tryggingarráðgjafa og þar sem Jobbi var akkúrat búinn að vera að skoða tryggingarnar dagana á undan sagði ég henni að hún skyldi frekar tala við manninn minn og gekk með símann til hans. Á leiðinni þangað "dó" síminn aftur... en þá vissi ég að hún gæti heyrt í mér eftir tilraunirnar skömmu áður þ.a. ég segi við hana að síminn sé e-ð bilaður og ég geti því miður ekkert heyrt í henni og verði að skella á... sem var ALVEG DAGSATT. Um leið og ég skelli á hugsa ég með mér að hún hljóti að halda að þetta sé VERSTA afsökun EVER til að losna við sölufólk úr símanum...;)
Annars skelltum við hjúin okkur í bíó í gær... með stórum hluta Bóner hópsins á Hangover. Ætluðum í 9 bíó og voru forsprakkarnir mættir um hálftíma fyrir sýningu til að kaupa sér miða en neinei þá var UPPSELT! Enduðum því á sýningu kl. 22:20 og ótrúlegt en satt sofnaði ég ekkert, enda MEGA fyndin mynd. Var ekkert búin að heyra af myndinni þ.a. ég fór ekki með neinar væntingar sem er alltaf best.
júní 15, 2009
20 vikna sónarinn búinn
Fyrir ca fjóru og hálfu ári síðan fórum við Jobbi í 19/20 vikna sónar þar sem mig langaði að fá að vita kynin en Jobba ekki. Í dag fórum við aftur í 19/20 vikna sónar og Jobba langaði að fá að vita kynið en ekki mig... Fengum því ekki að vita og engin hætta á að læknirinn kjafti óvart af sér seinna eins og gerðist með Birki í e-m af fjölmörgum sónurunum því við eigum ekki von á að fara neitt aftur í sónar á þessari meðgöngu. Ótrúlegur munur að fara í sónar með eitt barn þar sem vel gengur að mæla allt saman miðað við að vera í tvíburasónar. Við áttum tíma klukkan hálf 2 í dag og mættum ca 5 mínútur í hálf, vorum fljótlega kölluð inn og vorum komin aftur út 20 mínútur í tvö. Ég sem borgaði alveg fyrir klukkutíma í stöðumælinum;) Fengum þrjár krúttlegar myndir sem ég er búin að skanna inn... aldrei að vita nema þær fari í myndaalbúmið þegar ég verð búin að skanna inn restina af sónar myndunum sem við eigum.
Börnin eru voða mikið að spá í þessum stækkandi maga og litla barninu sem er inní. Um daginn spurði Ásdís hvort litla barnið hefði komið fljúgandi í vatnið (innsk. legvatnið) og til allrar hamingju fyrir mig snéri hún sér strax að e-u öðru og vildi ekki fá neitt svar. Í gær var hún svo að spá hvort litla barnið væri með kúta í vatninu og var mjög umhugað að litla barnið myndi ekki drukkna í vatninu... Birkir spurði mig í dag hvort maginn væri orðinn stór... ég svaraði að jú vissulega væri hann orðinn nokkuð stór. Þá kom næsta rökrétta spurning hvort litla barnið gæti þá komið út úr maganum;) Verður löng bið fram á haustið;)
júní 13, 2009
Komin aftur heim og hið daglega líf bíður
Þrátt fyrir að litli drengurinn okkar grátbiðji okkur um að vera lengur í fríi, því hann vilji ekki fara aftur í leikskólann (sem honum finnst alltaf gaman í þegar hann er kominn) þá er komið að því að við fjölskyldan þurfum að fara aftur í vinnu og leikskóla. Reyndi að telja Birki trú um að það væri nú ekkert svo langt þangað til að hann færi aftur í frí og þá enn lengra en hann sér bara ekki mikið lengra en morgundaginn þ.a. e-ð frí sem er í júlí gæti bara allteins verið á næsta ári. Ég var svo líka að segja að þegar ég yrði hætt að vinna og litla barnið kæmi þá gæti ég oft sótt hann snemma og þá vildi hann auðvitað bara fá litla barnið út NÚNA!!!
Annars er drengurinn farinn að taka upp óþægilega marga takta frá okkur foreldrunum...:/ Í gær fórum við í sund, sem væri ekki til frásögur færandi nema fyrir það að í bílnum á leiðinni þá festi Jobbi beltið hans í "vitlausu" mótstykki (hann getur bara losað sig sjálfur úr öðru stykkinu en hitt snýr með takkann inn að stólnum og hann nær því ekki sjálfur að losa). Hann varð svo fjúkandi reiður og argaði og gargaði að þetta væri alveg ÓÞOLANDI!!!! Endurtók það nokkrum sinnum þ.a. við værum örugglega með það á hreinu að honum þætti þetta alls ekki líðandi og gjörsamlega ÓÞOLANDI;) Fékk alveg flashback af nokkrum atriðum þar sem ég var alveg að missa mig yfir e-u sem þau gerðu og mér fannst gjörsamlega óþolandi:/ Eins gott að passa sig enn betur í þessu vandmeðfarna uppeldi.
júní 11, 2009
Nýgift og hamingjusöm:)
Þrátt fyrir að fjölskylda okkar héldi á ákveðnum tímapunkti að undirbúningurinn fyrir brúðkaupið myndi ekki hafast þá reddaðist allt saman á réttum tíma og daginn fyrir brúðkaup var bara nokkuð mikil rólegheit. Á brúðkaupsdaginn á meðan ég var í undirbúningnum mínum var Jobbi meira að segja bara heima að taka til. Allt heppnaðist eins og það átti að gera og krakkarnir krydduðu bara aðeins upp á athöfnina með því að fara í fýlu detta í tröppunum, vilja ekki labba inn kirkjugólfið og að passa svo upp á að kjóllinn kæmi ekki við gólfið á leiðinni út og halda frekar á slóðanum í einni klessu;) Maturinn hjá Kalla kokki klikkaði síðan ekki frekar en fyrri daginn og við vorum alsæl með daginn en líka dauðþreytt þegar við komum upp á hótelherbergi.
Við völdum að vera með lítið brúðkaup en samt vorum við hálfan sunnudaginn að opna allt gjafaflóðið! Takk kærlega fyrir okkur kæru vinir og fjölskylda! kossar og knús frá okkur!
júní 01, 2009
Nýjar myndir
Það hefur stundum loðið við mig og mína að hlutir séu annað hvort í ökkla eða eyra. 4 afmælisbörn á 5 dögum... troða brúðkaupi á einn af þeim afmælisdögum og svo framvegis... Þess vegna er líka kannski bara týpískt við að koma annað hvort með engar eða bara allar myndir á netið... Núna er ég búin að setja inn allar myndir frá ágúst og út árið 2008. Hið sama má nú segja um bloggið mitt... ekkert gerist í 2 mánuði og svo núna 3 í dag!;)
Verðandi stóru systkini
Litlu börnin okkar eru alveg að verða stór! Þau verða nefnilega stór á morgun þegar þau verða fjögurra ára (að eigin sögn) og svo munu þau verða enn stærri þegar þau verða stóra systir og stóri bróðir í haust. Ásdís heldur því reyndar fram að hún sé orðin stóra systir og heldur að við getum bara látið sækja litla barnið núna...
Í gæsapartíinu fékk ég skrilljón gjafir, voru eins og jól og afmæli á sama degi;) Þar á meðal fékk ég 2 snuð í pakka og í morgun komust krakkarnir í þau og opnuðu kassann, klifruðu upp í efri skáp og fengu reyndar svo smá hjálp frá pabba sínum við að koma snuðunum í skál! Þar finnst þeim fínt að geyma þau þar til litla barnið getur notað þau (btw, snuð fyrir 4m+;))
Núna ligg ég uppí rúmi með tölvuna og Jobbi við hliðina á mér og var hann loksins að fá að finna fyrstu hreyfingarnar:)
Gott að eiga góða að:-)
Við Jobbi áttum ansi góðan dag á laugardaginn í sitthvoru lagi! Stelpurnar tóku mig og gerðu ógleymanlegan dag og mega sko eiga það að að hafa náð að gera miklu meira úr deginum en ég hefði nokkurn tímann ímyndað mér að væri hægt að gera með ólétta gæs. Jobbi og strákarnir þurftu ekkert að hafa áhyggjur af óléttu eða brjóstagjöf þ.a. strákadagurinn var ekki alveg jafn rólegur og hjá okkur stelpunum;)
Við fórum öll í lazer tag... ekki saman samt því við stelpurnar vorum alveg góðar eftir korters leik en strákarnir tóku aðeins betur á því í úti lazer tag. Enn og aftur var ólétta ekki að trufla hálfan hópinn hjá strákunum eins og hjá stelpunum;) Sú kasólétta stóð sig þvílíkt vel og var í 3ja sæti af 14!!
Þegar ég heyrði reglulega af Jobba og hvernig ástandið væri þá hló ég alltaf reglulega og hugsaði til hans að hann yrði eflaust hress í barnaafmælinu sem við vorum boðin í, í gær;) Skal þó tekið fram að hann var bara nokkuð hress og lítið sem ekkert slappur:)