júní 15, 2009

20 vikna sónarinn búinn

Fyrir ca fjóru og hálfu ári síðan fórum við Jobbi í 19/20 vikna sónar þar sem mig langaði að fá að vita kynin en Jobba ekki. Í dag fórum við aftur í 19/20 vikna sónar og Jobba langaði að fá að vita kynið en ekki mig... Fengum því ekki að vita og engin hætta á að læknirinn kjafti óvart af sér seinna eins og gerðist með Birki í e-m af fjölmörgum sónurunum því við eigum ekki von á að fara neitt aftur í sónar á þessari meðgöngu. Ótrúlegur munur að fara í sónar með eitt barn þar sem vel gengur að mæla allt saman miðað við að vera í tvíburasónar. Við áttum tíma klukkan hálf 2 í dag og mættum ca 5 mínútur í hálf, vorum fljótlega kölluð inn og vorum komin aftur út 20 mínútur í tvö. Ég sem borgaði alveg fyrir klukkutíma í stöðumælinum;) Fengum þrjár krúttlegar myndir sem ég er búin að skanna inn... aldrei að vita nema þær fari í myndaalbúmið þegar ég verð búin að skanna inn restina af sónar myndunum sem við eigum.

Börnin eru voða mikið að spá í þessum stækkandi maga og litla barninu sem er inní. Um daginn spurði Ásdís hvort litla barnið hefði komið fljúgandi í vatnið (innsk. legvatnið) og til allrar hamingju fyrir mig snéri hún sér strax að e-u öðru og vildi ekki fá neitt svar. Í gær var hún svo að spá hvort litla barnið væri með kúta í vatninu og var mjög umhugað að litla barnið myndi ekki drukkna í vatninu... Birkir spurði mig í dag hvort maginn væri orðinn stór... ég svaraði að jú vissulega væri hann orðinn nokkuð stór. Þá kom næsta rökrétta spurning hvort litla barnið gæti þá komið út úr maganum;) Verður löng bið fram á haustið;)

Skrifaði eyrunl þann 15.06.09 18:03