júní 17, 2009

Bilaður heimasími

Í fyrradag var ég að spjalla við tengdamömmu þegar heimasíminn "dó" skyndilega, eða hún heyrði áfram í mér en ég heyrði ekkert. Ég skellti á og prófaði að hringja aftur, en þá heyrði ég heldur ekki símann hringja en sá á skjánum að það var búið að svara en áfram heyrði ég ekkert. Prófa að setja símann í hleðslu og stuttu seinna hringir síminn. Ég alsæl að síminn sé aftur hrokkinn í gang og svara. Það var e-r að spyrja hvort við vildum tala við tryggingarráðgjafa og þar sem Jobbi var akkúrat búinn að vera að skoða tryggingarnar dagana á undan sagði ég henni að hún skyldi frekar tala við manninn minn og gekk með símann til hans. Á leiðinni þangað "dó" síminn aftur... en þá vissi ég að hún gæti heyrt í mér eftir tilraunirnar skömmu áður þ.a. ég segi við hana að síminn sé e-ð bilaður og ég geti því miður ekkert heyrt í henni og verði að skella á... sem var ALVEG DAGSATT. Um leið og ég skelli á hugsa ég með mér að hún hljóti að halda að þetta sé VERSTA afsökun EVER til að losna við sölufólk úr símanum...;)

Annars skelltum við hjúin okkur í bíó í gær... með stórum hluta Bóner hópsins á Hangover. Ætluðum í 9 bíó og voru forsprakkarnir mættir um hálftíma fyrir sýningu til að kaupa sér miða en neinei þá var UPPSELT! Enduðum því á sýningu kl. 22:20 og ótrúlegt en satt sofnaði ég ekkert, enda MEGA fyndin mynd. Var ekkert búin að heyra af myndinni þ.a. ég fór ekki með neinar væntingar sem er alltaf best.

Skrifaði eyrunl þann 17.06.09 12:32
Ummæli

Bæði að tékka hvort kommenta kerfið virki og í leiðinni get ég montað mig á að heimasíminn fór aftur í gang eftir að Jobbi tók hann í sundur og ég prófaði að setja hann aftur saman nokkrum dögum seinna;)

Skrifaði: Eyrún þann 22.06.09 16:31