júní 01, 2009
Gott að eiga góða að:-)
Við Jobbi áttum ansi góðan dag á laugardaginn í sitthvoru lagi! Stelpurnar tóku mig og gerðu ógleymanlegan dag og mega sko eiga það að að hafa náð að gera miklu meira úr deginum en ég hefði nokkurn tímann ímyndað mér að væri hægt að gera með ólétta gæs. Jobbi og strákarnir þurftu ekkert að hafa áhyggjur af óléttu eða brjóstagjöf þ.a. strákadagurinn var ekki alveg jafn rólegur og hjá okkur stelpunum;)
Við fórum öll í lazer tag... ekki saman samt því við stelpurnar vorum alveg góðar eftir korters leik en strákarnir tóku aðeins betur á því í úti lazer tag. Enn og aftur var ólétta ekki að trufla hálfan hópinn hjá strákunum eins og hjá stelpunum;) Sú kasólétta stóð sig þvílíkt vel og var í 3ja sæti af 14!!
Þegar ég heyrði reglulega af Jobba og hvernig ástandið væri þá hló ég alltaf reglulega og hugsaði til hans að hann yrði eflaust hress í barnaafmælinu sem við vorum boðin í, í gær;) Skal þó tekið fram að hann var bara nokkuð hress og lítið sem ekkert slappur:)
Skrifaði eyrunl þann 01.06.09 08:10Þið þarna, fara ekki að koma nýjar myndir á síðuna?
Skrifaði: Ingvar þann 01.06.09 09:52jújú... ég er að vinna í því;)
Skrifaði: Eyrún þann 01.06.09 10:25