ágúst 08, 2009
Handklæðaskortur
Í fyrradag vorum við komin nálægt því að verða fyrir handklæðaskorti á heimilinu. Ég var samt svo heppin að finna hreint handklæði í gærmorgun þegar ég skellti mér í sturtu... Ástæðan fyrir þessum skyndilega handklæðaskorti var að það þurfti að "vökva" gólfið á efri hæðinni til að steypa yfir gólfhitann og það lak svona í gegn. Íbúðin var því öll í handklæðum til að taka vökvann sem lak og fata þar sem mest lak. Þegar við ætluðum svo í háttinn þá var "rigning" yfir rúminu okkar þ.a. rúmið var bara dekkað með stóru pissulaki og skrilljón handklæðum og við bjuggum um okkur í stofunni! Sem betur fer var þetta bara tímabundið og nú liðið hjá! Ekki alveg það skemmtilegasta að vera á skrilljón að þurrka upp eftir "rigningu" úr loftinu.
ágúst 01, 2009
Styttist í hið daglega líf aftur
Alveg merkilegt hvað maður venst lífinu vel að vera í fríi. Það besta við þetta frí var nú að eftir nokkra daga varð ég svo miklu betri í grindinni og eftir viku var ég alveg hætta að kjaga þegar ég labbaði... fann ekkert til! Reyndar fór ekkert of vel með skrokkinn að sitja í bíl til og frá Akureyri í síðustu viku og er núna líka að drepast í bakinu... vona að ég verði ekki marga daga að jafna mig á því.
Það sem við höfum helst gert í þessu fríi er að fara í sund, aðeins oftar í sund og svo nokkrum sinnum til viðbótar í sund... á Akureyri var kíkt í sundlaugargarðinn líka daglega og hérna í bænum eru börnin búin að fara tvisvar í húsdýragarðinn... Þar fyrir utan erum við bara búin að hafa það gott... boðin í mat nokkrum sinnum, krakkarnir búnir að hjóla endalaust mikið og mitt helsta afrek sumarfrísins er að vera langt komin með að prjóna ungbarnasett:)