september 27, 2009

Lítill sjónvarpssjúklingur

Um hálf 4 spurði Birkir hvort barnaefnið væri byrjað, en fékk það svar að barnaefnið byrjaði hálf 6. Það væri þegar litli vísirinn væri á milli 5 og 6 og stóri visirinn á 6. Mamman hélt að þar með væri hún sloppin til hálf 6, en nei ekki alveg svo gott. Næsta hálftímann var spurt reglulega, er barnaefnið byrjað núna og svo toppaði hann það með að segja "ó mæ, ég má ekki missa af barnaefninu! Klukkan var þá ekki enn orðin fjögur!

Skrifaði eyrunl klukkan 04:00 EH

september 25, 2009

"Innbrot" um bjartan dag

Í morgun fann ég ekki húslyklana mína þegar ég var að fara með krakkana á leikskólann. Ákvað því að skilja bara eftir ólæst á meðan ég skutlaði þeim og koma svo aftur heim áður en ég færi seinna í vinnuna. Þegar út var komið lokaði ég hurðinni án þess að muna eftir að taka hurðina úr lás. Ég var því úti á mínum frábæru Crocs skóm, með síma og bíllykil og ekki búin að tannbursta mig í þokkabót! Þar sem ég hafði ætlað að koma aftur þá hafði ég ekki lokað einum glugganum sem var opinn og sá gluggi bjargaði mér alveg, ég gat "brotist inn" hjá sjálfri mér. Hefur eflaust verið pínu skondin sjón að sjá ólétta konu vera að klöngrast inn um glugga. Eftir vel heppnað "innbrot" gat ég burstað í mér tennurnar, legið aðeins í leti áður en ég fór í vinnuna, skipt um skó og tekið veskið með mér:)

Skrifaði eyrunl klukkan 09:28 EH | 3 Ummæli

september 23, 2009

Bílaleitinni lokið

Við erum búin að vera á einum bíl síðan í lok maí þegar bremsurnar fóru á Renaultinum og við ákváðum að gera ekki við hann þegar við komumst að því hvað þyrfti að gera mikið. Á endanum seldum við hann í partasölu. Síðan í sumar erum við svo búin að vera að leita að nýjum bíl sem hentar stækkandi fjölskyldu. Voru nokkrar tegundir sem við vildum og sumar meira en aðrar. Enduðum á að kaupa Crysler town & country og vonandi dugar hann okkur í e-n tíma þrátt fyrir að vera orðinn nokkurra ára gamall.
Þvílíkur lúxus að vera komin aftur á tvo bíla, var farin að sjá fyrir mér að vera bíllaus upp á fjalli í fæðingarorlofinu ef við hefðum ekki fundið okkur bíl, ekki alveg að nenna því;)

Skrifaði eyrunl klukkan 10:32 EH

september 16, 2009

Stigahlaup

Þegar við Birkir vorum búin hjá lækninum í dag var ég að borga en Birkir gat auðvitað ekki staðið kyrr hjá mér eitt augnablik. Allt í einu heyri ég lyftuna lokast og hræðsluöskrin í honum! Ég hleyp fram á ganginn og panta lyftuna til að ath hvort hún opnist en hún er þá lögð af stað niður af fimmtu hæðinni. Ég skil allt dótið mitt eftir í afgreiðslunni og hleyp af stað niður tröppurnar. Á þriðju hæð panta ég lyftuna og held áfram niður því gráturinn í drengnum heyrist um allan stigaganginn. Á 2. hæð er lyftan farin aftur upp þ.a. ég hendist aftur upp á 3. hæð og segi Birki að koma út úr lyftunni þegar lyftan opnast þar.

Á meðan ég hljóp niður fann ég ekkert til en um leið og ég var búin að finna Birki aftur vissi ég ekki hvort ég gæti hreyft mig aftur! Með grindargliðnun á maður helst ekki að labba niður tröppur og hvað þá hlaupa niður margar hæðir og ég er alveg að finna fyrir því núna! En eins og ég sagði við mömmu, hvað gat ég annað gert?

Skrifaði eyrunl klukkan 10:07 EH | 1 Ummæli

Læknastúss

Í 6 vikur í röð er ég búin að fara með krakkana (annað eða bæði) til læknis. Ásdís er búin að fá 2 eyrnabólgur og svo er búið að brenna frauðvörtur af Birki, búin að komast að því að Birkir er kviðslitinn og enn með smá naflaslit og á leiðinni í aðgerð eftir 2 vikur. Hann er allur út í útbrotum sem læknirinn á vaktinni hristi bara hausinn og hafði ekki hugmynd hvað það væri. Næstu 2 vikur eða fram að aðgerðinni eru svo fleiri læknisheimsóknir fyrirhugaðar. Heppilegt að þetta læknavesen byrjaði hjá krökkunum ekki fyrr en ég var komin í 50% starf því annars hefði ég verið eins og jojo á milli Grafarvogs og Hafnarfjarðar.

Skrifaði eyrunl klukkan 09:27 EH

september 05, 2009

Býflugan og blómið

Krakkarnir okkar eru alveg ótrúlega spennt fyrir litla barninu sem vex inní mömmumaga og eru oft og mikið að spá í alls konar hlutum. Birkir er alltaf að kyssa bumbuna og vill helst fletta upp um mig út í búð til að geta kysst beint á bumbuna;) Ásdís hefur verið meira í dýpri pælingum en bróðir sinn og fyrst þegar hún komst að því að litla barnið væri í vatni inní maganum þá fékk ég reglulega spurningar hvort það væri ekki örugglega með kúta svo það myndi nú ekki drukkna!

Í byrjun júní fékk ég fyrstu spurninguna um hvort litla barnið hefði komið fljúgandi inn í magann... en áður en ég náði að svara var hún komin með nýja og allt aðra spurningu (hún var bara að reyna að sleppa við að þurfa að fara að sofa). Ég slapp því það skiptið en það gaf mér smá umhugsunarfrest hvernig væri best að útskýra þessa hluti fyrir 4 ára börnum.

Fyrir nokkru síðan var ég svo að lesa fyrir börnin þegar Ásdís spyr hvernig barnið komist út úr maganum. Ég spyr hana hvað hún haldi, en hún er alveg grunlaus og yptir bara öxlum. Ég segi henni því hvaðan barnið komi og þvílíkt sem þau urðu hissa! Birkir sem lá alveg slakur og nálægt því að sofna reis upp á methraða og þau þurftu smá tíma til að melta þetta. Eftir þetta hafa þau rekist á myndir af fæðingu, beint upp í klof (úr bók sem ég á) og þeim fannst það nú ekki merkilegt, bara barn að koma út úr maganum á mömmu sinni og svo haldið áfram að leika...

Í gærkveldi spurði Ásdís svo hvernig barnið hefði komist í magann. Í þetta skiptið var hún ekki með neinar hugmyndir um að barnið hefði flogið inn í magann og vildi bara að mamma hennar myndi segja henni það. Þá var eins gott að vera bara hreinskilinn án þess að fara í OF mikil detail og henni fannst það bara ekkert merkilegt... svaraði bara "já ok".

Þau eru á svo æðislegum aldri að það er nánast allt sem mamma og pabbi segja rökrétt og sjálfsagt.

Skrifaði eyrunl klukkan 10:21 FH | 2 Ummæli