september 25, 2009
"Innbrot" um bjartan dag
Í morgun fann ég ekki húslyklana mína þegar ég var að fara með krakkana á leikskólann. Ákvað því að skilja bara eftir ólæst á meðan ég skutlaði þeim og koma svo aftur heim áður en ég færi seinna í vinnuna. Þegar út var komið lokaði ég hurðinni án þess að muna eftir að taka hurðina úr lás. Ég var því úti á mínum frábæru Crocs skóm, með síma og bíllykil og ekki búin að tannbursta mig í þokkabót! Þar sem ég hafði ætlað að koma aftur þá hafði ég ekki lokað einum glugganum sem var opinn og sá gluggi bjargaði mér alveg, ég gat "brotist inn" hjá sjálfri mér. Hefur eflaust verið pínu skondin sjón að sjá ólétta konu vera að klöngrast inn um glugga. Eftir vel heppnað "innbrot" gat ég burstað í mér tennurnar, legið aðeins í leti áður en ég fór í vinnuna, skipt um skó og tekið veskið með mér:)
Skrifaði eyrunl þann 25.09.09 21:28Hehhehe efnilegur glæpon... svona með kúluna útí loftið ;O)
Skrifaði: Bína þann 27.09.09 10:00hehe hefði viljað sjá þetta. Er þetta ekki byrjun á brjóstaþoku? ;o)
Skrifaði: Anna þann 27.09.09 15:47Held það sé nú alveg hægt að flokka þetta bara undir meðgönguþokuna mína;) Ekki viss um að það sé mikill munur á þessum tveimur þokum, svona í grunninn;)
Skrifaði: Eyrún þann 27.09.09 15:58