september 16, 2009
Stigahlaup
Þegar við Birkir vorum búin hjá lækninum í dag var ég að borga en Birkir gat auðvitað ekki staðið kyrr hjá mér eitt augnablik. Allt í einu heyri ég lyftuna lokast og hræðsluöskrin í honum! Ég hleyp fram á ganginn og panta lyftuna til að ath hvort hún opnist en hún er þá lögð af stað niður af fimmtu hæðinni. Ég skil allt dótið mitt eftir í afgreiðslunni og hleyp af stað niður tröppurnar. Á þriðju hæð panta ég lyftuna og held áfram niður því gráturinn í drengnum heyrist um allan stigaganginn. Á 2. hæð er lyftan farin aftur upp þ.a. ég hendist aftur upp á 3. hæð og segi Birki að koma út úr lyftunni þegar lyftan opnast þar.
Á meðan ég hljóp niður fann ég ekkert til en um leið og ég var búin að finna Birki aftur vissi ég ekki hvort ég gæti hreyft mig aftur! Með grindargliðnun á maður helst ekki að labba niður tröppur og hvað þá hlaupa niður margar hæðir og ég er alveg að finna fyrir því núna! En eins og ég sagði við mömmu, hvað gat ég annað gert?
Skrifaði eyrunl þann 16.09.09 22:07Já góðan daginn, týpískt Birkir að koma sér í svona vandræði.
Skrifaði: Ingvar Linnet þann 22.09.09 10:46