október 30, 2009
Fæðingarsaga litla drengsins okkar
Á miðvikudagskvöldið breyttust fyrirvaraverkirnir, urðu aðeins harðari og reglulegri (samt alveg langt því frá að vera hríðar). Þannig voru þeir þar til um þrjú leytið í gær en þá byrjuðu þeir að herðast enn frekar.
Um fjögur leytið hringdi ég í ljósuna og lét hana vita að þetta gæti farið að gerast en ég væri samt ekkert alveg á því að þetta væri alveg á næstunni, hún gæti alveg farið í leikfimi milli 5 og 6 án þess að hafa áhyggjur af mér, hún þyrfti ekkert að tékka á mér strax... Jobbi ekki kominn heim og hann ætti eftir að koma heim og taka til áður! Á þeim tíma var hann nýlagður af stað heim úr vinnunni, ég sendi hann til að koma við hjá Önnu Maríu að ná í uppblásinn bolta til að ég gæti setið á og svo átti hann eftir að sækja krakkana og koma með þau heim. Mér fannst algjör óþarfi að senda þau strax í pössun... kannski gætu þau bara verið heima, farið að sofa og svo myndi ég eiga seinna um kvöldið/nóttina.
Þegar þau koma heim rúmlega hálf 5 finnst mér þetta vera farið að herðast aðeins og styttast á milli en það hlyti samt að vera slatti eftir, fer í sturtuna á meðan Jobbi undirbýr stofuna til að koma baðinu fyrir og hann kemur krökkunum af stað til Margrétar frænku sem býr í næsta húsi og þau fullfær um að labba sjálf á milli. Þegar klukkan nálgast 5 bið ég Jobba að hringja í ljósuna og hann bað hana bara að koma að kíkja á okkur (þ.a. henni fannst hún ekkert þurfa að drífa sig neitt sérstaklega en kom sér samt í að koma). Rúmlega 5 var hún ekki komin og ég spyr Jobba hvað hann hafi eiginlega sagt við ljósuna??? Ég vildi fara að fá hana ekki seinna en í gær því mér fannst ég vera farin að finna þrýsting (sem ég trúði samt varla að gæti verið byrjun á rembingnum... enda bara nýbúin að sannfærast um að vera komin af alvöru í fæðingu!). Svo kom rembingur og ég sagði Jobba að hringja aftur og segja henni að ég héldi að barnið væri að koma!! Færði mig svo yfir á klósettið því ég hafði ekki haft neina úthreinsun og var svona smá að velta fyrir mér hvort ég þyrfti bara að gera nr. 2 eða hvort barnið væri í alvörunni að koma. Í næstu hríð var ég komin á klósettið og þá kom úthreinsunin og svo í þriðju hríðinni kom höfuðið hálfa leið út og belgurinn sprakk og svo kom hann bara allur. Þegar ég fann að höfuðið væri að koma sagði ég Jobba að hringja enn einu sinni í ljósuna og þegar hún svaraði var hann akkúrat fæddur. Hún var sem betur fer bara stutt í burtu og var komin ca 3 mínútum seinna.
Ég var s.s. á klósettinu en stóð bara rétt upp og greip litla drenginn sjálf, hann grét nánast alveg strax og ég losaði naflastrenginn sem var einu sinni laust vafinn um hálsinn á honum. Ljósan sagði Jobba að passa bara að okkur yrði ekki kalt svo við vöfðum hann bara inn í handklæði og Jobbi lét annað handklæði yfir axlirnar mínar og við biðum svo bara á klósettinu eftir ljósunni enda rúmið alls ekkert tilbúið fyrir mig án þess að það færi blóð beint í rúmið.
Fylgjan kom rúmum hálftíma á eftir drengnum og þá fékk Jobbi að skilja á milli. Þegar hún var búin að sauma mig þá hringdum við í krakkana og sögðum þeim að þau mættu koma heim og þau fylgdust með þegar hann var vigtaður og mældur.
Hann fæddist s.s. í gær 29. okt kl 17:12 og var 4300gr og 52cm og alveg fullkominn :)
Setjum myndir í myndaalbúmið seinna í dag.
Uppfært: Komnar myndir í myndaalbúmið okkar!
október 27, 2009
Dekurdagur hjá okkur Birki
Þar sem það styttist í mamman losni við kúluna á maganum og hún hætt að vinna þá var ákveðið að börnin fengju sitt hvorn daginn í frí með mömmu. Birkir er heima í dag og Ásdís verður heima á morgun.
Dagurinn byrjaði reyndar ekki vel því Birkir vaknaði 5:20!! Hann var reyndar alveg stilltur uppí rúmi en eftir amk hálftíma andvöku hjá honum þar sem ég hélt oft að hann væri sofnaður þá sofnaði hann loksins og við sváfum til 8:)
Birkir neitaði sundferð en vill endilega kíkja í heimsókn í vinnuna hennar mömmu í hádeginu þ.a. við ætlum að gera það:) Svo er bara spurning hvað við gerum eftir hádegi... hans aðal "verkefni" á þessum langþráða frídegi er samt að leika sér með lestarnar sínar, hann getur sko leikið með þær dögum saman, nú eru Tomma togvagns lestarnar hans orðnar að skellibæjarlestum sem hoppa og snúa á snúningspalli.
október 20, 2009
"Týndi" giftingarhringnum í nótt
Í gærkveldi fór ég að sofa með giftingarhringinn á hendinni (reyndar var ég búin að færa hann yfir á hægri hendi þar sem það fór aðeins betur um hann á hægri baugfingri en þeim vinstri). Í nótt rámar mig í að hafa rembst við að taka hann af hendinni þar sem hann var e-ð að meiða mig... rámar líka í að vera í vandræðum með hvar ég ætti að leggja hann frá mér svo ég myndi nú ekki týna honum. Í morgun vakna ég svo og tek eftir að ég er ekki með giftingarhringinn á hendinni og man EKKERT hvar ég hef potað honum í nótt :/ Hann HLÝTUR samt að vera inní herbergi (mig rámar nefnilega ekkert í að hafa farið fram í nótt...) og ég held ég neyðist bara til að ganga frá þar og finna blessaðan hringinn;)
Update 20/10 kl 21:00: Hringurinn fannst áðan upp í hjónarúminu til fóta hjá Jobba...
október 18, 2009
Nýjar myndir í myndaalbúminu
Skellti inn þremur nýjum bumbumyndum í gærkveldi í myndaalbúmið okkar enda ekki seinna vænna... styttist orðið í annan endann á þessari meðgöngu. Erum að verða tilbúin að mestu leyti og meira að segja komnar gardínur fyrir "hinn" stofugluggann, enda hefði verið hálf bjánalegt að vera að eiga heima og ekki með neina gardínu...;)