október 30, 2009

Fæðingarsaga litla drengsins okkar

Á miðvikudagskvöldið breyttust fyrirvaraverkirnir, urðu aðeins harðari og reglulegri (samt alveg langt því frá að vera hríðar). Þannig voru þeir þar til um þrjú leytið í gær en þá byrjuðu þeir að herðast enn frekar.

Um fjögur leytið hringdi ég í ljósuna og lét hana vita að þetta gæti farið að gerast en ég væri samt ekkert alveg á því að þetta væri alveg á næstunni, hún gæti alveg farið í leikfimi milli 5 og 6 án þess að hafa áhyggjur af mér, hún þyrfti ekkert að tékka á mér strax... Jobbi ekki kominn heim og hann ætti eftir að koma heim og taka til áður! Á þeim tíma var hann nýlagður af stað heim úr vinnunni, ég sendi hann til að koma við hjá Önnu Maríu að ná í uppblásinn bolta til að ég gæti setið á og svo átti hann eftir að sækja krakkana og koma með þau heim. Mér fannst algjör óþarfi að senda þau strax í pössun... kannski gætu þau bara verið heima, farið að sofa og svo myndi ég eiga seinna um kvöldið/nóttina.

Þegar þau koma heim rúmlega hálf 5 finnst mér þetta vera farið að herðast aðeins og styttast á milli en það hlyti samt að vera slatti eftir, fer í sturtuna á meðan Jobbi undirbýr stofuna til að koma baðinu fyrir og hann kemur krökkunum af stað til Margrétar frænku sem býr í næsta húsi og þau fullfær um að labba sjálf á milli. Þegar klukkan nálgast 5 bið ég Jobba að hringja í ljósuna og hann bað hana bara að koma að kíkja á okkur (þ.a. henni fannst hún ekkert þurfa að drífa sig neitt sérstaklega en kom sér samt í að koma). Rúmlega 5 var hún ekki komin og ég spyr Jobba hvað hann hafi eiginlega sagt við ljósuna??? Ég vildi fara að fá hana ekki seinna en í gær því mér fannst ég vera farin að finna þrýsting (sem ég trúði samt varla að gæti verið byrjun á rembingnum... enda bara nýbúin að sannfærast um að vera komin af alvöru í fæðingu!). Svo kom rembingur og ég sagði Jobba að hringja aftur og segja henni að ég héldi að barnið væri að koma!! Færði mig svo yfir á klósettið því ég hafði ekki haft neina úthreinsun og var svona smá að velta fyrir mér hvort ég þyrfti bara að gera nr. 2 eða hvort barnið væri í alvörunni að koma. Í næstu hríð var ég komin á klósettið og þá kom úthreinsunin og svo í þriðju hríðinni kom höfuðið hálfa leið út og belgurinn sprakk og svo kom hann bara allur. Þegar ég fann að höfuðið væri að koma sagði ég Jobba að hringja enn einu sinni í ljósuna og þegar hún svaraði var hann akkúrat fæddur. Hún var sem betur fer bara stutt í burtu og var komin ca 3 mínútum seinna.

Ég var s.s. á klósettinu en stóð bara rétt upp og greip litla drenginn sjálf, hann grét nánast alveg strax og ég losaði naflastrenginn sem var einu sinni laust vafinn um hálsinn á honum. Ljósan sagði Jobba að passa bara að okkur yrði ekki kalt svo við vöfðum hann bara inn í handklæði og Jobbi lét annað handklæði yfir axlirnar mínar og við biðum svo bara á klósettinu eftir ljósunni enda rúmið alls ekkert tilbúið fyrir mig án þess að það færi blóð beint í rúmið.

Fylgjan kom rúmum hálftíma á eftir drengnum og þá fékk Jobbi að skilja á milli. Þegar hún var búin að sauma mig þá hringdum við í krakkana og sögðum þeim að þau mættu koma heim og þau fylgdust með þegar hann var vigtaður og mældur.

Hann fæddist s.s. í gær 29. okt kl 17:12 og var 4300gr og 52cm og alveg fullkominn :)

Setjum myndir í myndaalbúmið seinna í dag.

Uppfært: Komnar myndir í myndaalbúmið okkar!

Skrifaði eyrunl þann 30.10.09 10:24
Ummæli

Kæra fjölskylda,
Innilega til hamingju með litla strákinn :)
Æðisleg fæðingasaga,algjörar hetjur!
bestu kveðjur frá fjölskyldunni neðst í brekkunni

Skrifaði: Hrafnhildur þann 30.10.09 10:37

Jii...engin smá saga! :D

Innilega til hamingju með drenginn, vonandi hafið þið það öll súpergott :)

Skrifaði: Erna Björg þann 30.10.09 10:56

Vá! Litla manninum lá svo sannarlega á að koma í heiminn. Eins gott að þú greipst hann áður en hann fór ofan í kósettið! Svo er hann líka stór og myndarlegur.

Til hamingju.

Skrifaði: Sonja þann 30.10.09 11:11

Innilega til hamingju með litla prinsinn;o) Honum hefur heldur betur legið á að komast í heiminn!

Kveðja frá Akureyri
Eva, Davíð og Alís Lilja

Skrifaði: Eva Ósk þann 30.10.09 12:20

Vá, frábær fæðingarsaga þú ert nú meiri hetjan Eyrún! Innilega til hamingju með drenginn. Bestu kvejur Íris, Benni og Nökkvi.

Skrifaði: Íris þann 30.10.09 12:22

Vó, það er aldeilis kraftur! Til hamingju með drenginn :)

Skrifaði: Valdís (Bomba) þann 30.10.09 16:28

Kæra fjölskylda, innilega til hamingju með drenginn, bestu kveðjur að norðan, Agnes og Elli

Skrifaði: Agnes Eyfjörð þann 30.10.09 17:37

Vá- þetta er alveg óóótrúlegt!! Hjartanlega til hamingju með litla snúðinn :) :)
Knús...

Skrifaði: Harpa Mjöll þann 30.10.09 17:52

Innilega til hamingju kæra fjölskylda.
Frábær fæðingarsaga, það er örugglega merkileg lífsreynsla að taka svona á móti barninu sínu sjálf.

Bestu kveðjur úr Hrísrimanum

Skrifaði: Jóhanna Sif þann 31.10.09 09:39

vá :D Ótrúleg saga og alveg yndisleg :D :D Innilega til hamingju kæra fjölskylda

Skrifaði: Þórey þann 02.11.09 13:39