október 20, 2009
"Týndi" giftingarhringnum í nótt
Í gærkveldi fór ég að sofa með giftingarhringinn á hendinni (reyndar var ég búin að færa hann yfir á hægri hendi þar sem það fór aðeins betur um hann á hægri baugfingri en þeim vinstri). Í nótt rámar mig í að hafa rembst við að taka hann af hendinni þar sem hann var e-ð að meiða mig... rámar líka í að vera í vandræðum með hvar ég ætti að leggja hann frá mér svo ég myndi nú ekki týna honum. Í morgun vakna ég svo og tek eftir að ég er ekki með giftingarhringinn á hendinni og man EKKERT hvar ég hef potað honum í nótt :/ Hann HLÝTUR samt að vera inní herbergi (mig rámar nefnilega ekkert í að hafa farið fram í nótt...) og ég held ég neyðist bara til að ganga frá þar og finna blessaðan hringinn;)
Update 20/10 kl 21:00: Hringurinn fannst áðan upp í hjónarúminu til fóta hjá Jobba...
Skrifaði eyrunl þann 20.10.09 10:46hahaha flott hjá þér að taka hann bara af þér sofandi :D,,, en ég veit ekki hversu góð þú varst að ráða úr þeim vandræðum að setja hann frá þér svo þú týnir honum ekki... þar sem það er ekki alveg besti staðurinn að setja giftingarhringinn frá sér í rúminu til fóta hjá jobba :P
Skrifaði: Fríða þann 24.10.09 12:27