nóvember 07, 2009

Aðskilnaður

Í gær stakk ég af í þrítugsafmæli í tæpa tvo klukkutíma og skildi litla ungann eftir hjá pabba sínum. Var alveg frekar skrítið að fara svona ein út en það sem mér fannst eiginlega skrítnara var hversu uppgefin ég var eftir þessa tvo tíma. Litli stubburinn átti að sofa allann tímann en hann var nú ekki alveg á því... vaknaði fljótlega en pabbinn náði að halda honum sofandi fyrri klukkutímann. Síðan fékk hann pela sem ég hafði mjólkað mig í um morguninn og beið svo eftir mér þegar ég mætti. Hann var alveg tiltölulega rólegur hjá pabba sínum þegar ég labbaði inn úr dyrunum en þegar ég tók hann upp þá orgaði hann eins og ljón, "GEFÐU MÉR MJÓLK AÐ DREKKA, NÚÚÚÚNNA!!!";)

Ásdís var auðvitað hæstánægð með að hafa fengið að gefa litla bróðir pela og spurði mig þegar ég kom heim hvort við gætum ekki bara gefið honum pela!?! Uhhhh, nei ekki alveg;)

Í gærkvöldi mætti svo Kristbjörg ljósmóðir í síðasta skiptið til okkar og við þar með útskrifuð úr heimaþjónustunni. Ég á eftir að sakna þess að fá hana í heimsókn til okkar en þetta þýðir auðvitað bara að litli nýfæddi unginn okkar er að stækka og kominn yfir til heilsugæslunnar.

Skrifaði eyrunl þann 07.11.09 10:43