nóvember 29, 2009

Klaufamamma

Ég er svo mikill klaufi að það hálfa væri hellingur... ég var að slétta á mér hárið í Fagraberginu í dag og missi sléttujárnið en ég með þetta líka góða viðbragð gríp það aftur áður en það fer í gólfið!! Nema ég gríp utan um heita járnið!!! Núna eru liðnir 5 og hálfur tími og ég er enn háð klökum og þetta fína burn free dót sem ég á virkar ekki rass í bala... Ég gæti grenjað úr sársauka... en samt sést varla neitt á hendinni á mér, mætti halda að ég hafi brennst bara undir húðinni...

Skrifaði eyrunl þann 29.11.09 21:18
Ummæli

Kallst þetta ekki að vera hörundssár ;)

Skrifaði: Logi þann 03.12.09 14:29

hehehe, jú líklega ;)

Skrifaði: Eyrún þann 03.12.09 23:12
Skráðu ummæli









Muna upplýsingar?