nóvember 01, 2009

Ljúfa líf

Takk fyrir allar kveðjurnar sem við höfum fengið! Það að taka á móti eigin barni var ótrúlega mögnuð upplifun en alls engin hetjudáð... það var ekki um neitt annað að ræða og þá tók náttúran bara völdin. Mér leist náttlega ekki alveg á blikuna fyrst þegar ég fann rembing að ljósan væri ekki mætt en svo þegar ég fann höfuðið koma þá var eins og ég hefði verið stillt á auto pilot og gerði bara það sem þurfti.

Nú eru liðnar 3 nætur síðan litli drengurinn okkar ákvað að hann vildi heilsa upp á mömmu, pabba og stóru systkinin. Hann er algjört ljós, drekkur, ropar, pissar, kúkar, sefur og opnar stundum augun til að kíkja aðeins á okkur. Ég er öll að koma til, helv*** samdrættirnir búnir og mjólkin mætt í öllu sínu veldi... þ.a. maður gæti haldið að Pamela önnur hefði flutt inn til mín;)

Í morgun er ég búin að vera að ganga frá hérna, þvo þvott og fara í gegnum dót sem ég ætla að skila... þ.a. að þið sem eigið dót hjá mér og kíkið í heimsókn á næstunni eigið von á sendingu frá mér;)

Annars er nú alveg óhætt fyrir fólk að bjalla í okkur... og jafnvel kíkja á okkur í vikunni svo lengi sem enginn er lasinn á heimilinu. Vegna flensunnar ætlumst við líka til að fólk þvoi sér vel um hendurnar þegar það kemur inn til okkar þar sem það er talinn vera ein besta leiðin til að varna smiti.

Skrifaði eyrunl þann 01.11.09 13:20
Ummæli

Gott framtak að minna fólk á að þvo sér. Þú gætir líka verið með handspritt handhægt þannig að fólk geti sótthreinsað hendurnar þegar það kemur inn um dyrnar.

Sammála með að það er engin hetjudáð að taka á móti eigin barni, en það er mjög spes. Það eru ekki margar konur sem gera það. Eins og þú segir þá tekur náttúran völdin og þú gerir bara það sem þú þarft að gera án þess að taka beint ákvörðun um það.

Njótið hveitibrauðsdagana með litla stúf.

Skrifaði: Sonja þann 01.11.09 15:40