desember 26, 2009
"Ég vildi að ég væri strákur"
Rétt í þessu heyrðist þessi setning koma úr munni Ásdísar. Jobbi spurði hana af hverju, og jú það var svo hún gæti pissað standandi! Einu sinni var ég líka lítil stelpa og þá var þetta líka draumur minn, að geta pissað standandi. Reyndi það meira að segja heima á Miðvanginum... eflaust við litla gleði mömmu minnar þar sem líkami kvenna er ekkert sérlega vel heppilegur til að pissa standandi í klósett;)
desember 25, 2009
Gleðileg jól
Við óskum ykkur öllum gleðilegra jóla og vonum að þið hafið það öll sem allra best yfir hátíðarnar.
Við fjölskyldan erum búin að eiga viðburðarríkt ár, fluttum í nýja húsið okkar uppi á fjalli, lítill bumbubúi ákvað að heimsækja mömmu sína, við Jobbi vorum gæsuð og steggjuð áður en við giftum okkur og svo í lok október fæddist okkur annar drengur sem í gær fékk nafnið Gísli.